Við klæðum hús

Norðurstjarnan
Byggingarlausnir

Áratuga reynsla

Eigandi Norðurstjörnunnar er blikksmiður með áratuga reynslu og hjá honum starfar fjöldi fagmanna.

Nútímalegur
tækjabúnaður

Blikkverkstæði okkar annar stórum verkefnum.

Úrvals hráefni

Við vinnum eingöngu með gæða hráefni sem stenst tímans tönn.

Klæðningar

Klæðningar sem endast í íslenskum aðstæðum

Við hönnum, framleiðum, beygjum og setjum upp klæðningar fyrir hús og byggingar af öllum stærðum. Með áralangri reynslu og faglegri framkvæmd sjáum við um allt ferlið – frá fyrstu hugmynd að fullfrágenginni klæðningu.

Heildarlausn
Við tökum verkefnið alla leið. Hönnun, framleiðsla, beyging, uppsetning og frágangur eru allt unnið af sama teymi sem tryggir gæði, skilvirkni og örugg samskipti.
Sérsmíðað fyrir hvert verkefni

Engin tvö verkefni eru eins. Við sérsmíðum klæðningar sem falla að hönnun byggingarinnar og uppfylla kröfur um endingu, útlit og veðurþol.

Klæðningar

Fallegar og endingargóðar klæðningar fyrir framtíðina

Rétt klæðning ver bygginguna, eykur endingu hennar og skapar heildarútlit sem endist um árabil. Við bjóðum heildarlausn þar sem hönnun, beyging, framleiðsla og uppsetning eru unnin af sama aðila.
Allt á einum stað
Frá fyrstu teikningum til lokaúttektar sjáum við um allt ferlið. Þannig tryggjum við samræmd gæði, skilvirka framkvæmd og lausnir sem standast íslenskar aðstæður.
Vönduð vinnubrögð

Við vinnum með hágæða efni og leggjum metnað í nákvæm vinnubrögð og faglegan frágang. Markmiðið er klæðning sem lítur vel út í dag og endist til framtíðar.

Blikksmiðjan

Blikksmiðjan okkar er útbúin öflugum vélabúnaði og góðu rými sem annar verkefnum af öllum stærðargráðum.

Skólabygging

Ingunnarskóli

þak

Sjómanna-
skólans

veggir

Landsbanka-
hússins

Fyrri verk

Stór & smá

Við höfum séð um klæðningar bæði fyrir þök og veggi á stórum og smáum byggingum út um allt land. 

Um okkur

Ending & gæði eru okkar markmið

Íslenskar veðuraðstæður geta verið óvægnar og hús þurfa að vera sterk og vel varin fyrir bæði vindum og úrkomu. Því er mikilvægt að klæða hús með endingargóðum klæðningum og vanda til verka varðandi allan frágang.

Gæði

Við vinnum einungis með efni sem hafa sannað sig við íslenskar aðstæður.

Áreiðanleiki

Við leggjum mikið upp úr áreiðanleika og reynum eftir fremsta megni að standast tímaáætlanir.